Nokia 3710 fold - Símtalsstillingar

background image

Símtalsstillingar

Veldu

Valmynd

>

Stillingar

og

Símtalsstillingar

og úr eftirfarandi:

Símtalsflutningur — Til að flytja innhringingar (sérþjónusta). Ef til vill geturðu ekki

flutt símtöl ef einhver valkostur er virkur sem útilokar símtöl.

Lyklaborðssvar — Til að svara mótteknum símtölum með því að styðja stutt á einhvern

takka, fyrir utan rofann, vinstri og hægri valtakkana eða hætta-takkann.

Sjálfvirkt endurval — Til að láta símann hringja sjálfkrafa aftur í númer ef símtal

mistekst. Síminn reynir að hringja í númerið 10 sinnum.

Símtal f. myndsímt. — Til að tækið reyni sjálfkrafa að koma á venjulegu símtali í sama

númer ef það mistókst að koma á myndsímtali.

Skýrleiki tals — Til að auka skýrleika tals þegar umhverfishávaði er mikill.

Hraðval — Til að hringja í nöfn og símanúmer sem úthlutað hefur verið á talnatakkana

(2-9) með því að halda viðeigandi talnatakka inni.

Biðþjónusta símtala — Til að símkerfið láti þig vita af innhringingu meðan á öðru

símtali stendur (sérþjónusta).

Lengd símtals — Til að birta lengd yfirstandandi símtals.

Samantekt símtals — Til að birta í smástund upplýsingar um lengd símtala að þeim

loknum.

Birta mínar upplýs. — Til að þeir sem þú hringir í sjái símanúmerið þitt (sérþjónusta).

Ef þú vilt nota stillingarnar sem þjónustuveitan þín hefur samþykkt skaltu velja

Stillt af

netkerfi

.

Lína til að hringja — Til að velja símalínu fyrir símtöl, ef SIM-kortið þitt styður fleiri en

eina símalínu (sérþjónusta)

Opna til að svara — Til að svara eða slíta símtali með því að opna eða loka tækinu.