Sannvottun heilmyndar
1
Þegar þú horfir á heilmyndina á miðanum ættirðu að sjá Nokia-handabandstáknið frá einu sjónarhorni og „Nokia Original
Enhancements“ táknið frá öðru.
2
Þegar þú snýrð heilmyndinni til vinstri, hægri, upp eða niður ættirðu að sjá 1, 2, 3 eða 4 punkta, allt eftir staðsetningu
hennar.
Þó svo að þessum skrefum sé fylgt nákvæmlega er það ekki fullkomin trygging fyrir því að rafhlaðan sé ósvikin. Ef þú getur ekki
staðfest að svo sé eða hafir þú minnstu ástæðu til að ætla að rafhlaðan með heilmyndinni sé ekki ósvikin Nokia rafhlaða skaltu
ekki nota hana heldur fara með hana til viðurkenndrar þjónustumiðstöðvar eða söluaðila Nokia.
Nánari upplýsingar um ósviknar Nokia rafhlöður er að finna á www.nokia.com/battery.