SIM-korti og rafhlöðu komið fyrir
Til athugunar: Slökkva skal á tækinu og aftengja hleðslutækið og önnur tæki
áður en fram- og bakhliðarnar eru fjarlægðar. Forðast skal að snerta rafræna íhluti þegar
verið er að skipta um fram- og bakhliðar. Alltaf skal geyma og nota tækið með áföstum
fram- og bakhliðum.
SIM-kortið og innihald þess getur hæglega orðið fyrir skemmdum ef það er rispað eða
beygt svo fara skal varlega þegar það er meðhöndlað, sett inn og tekið út.
1 Opnaðu bakhliðina og fjarlægðu hana.
Tækið tekið í notkun
5
2 Fjarlægðu rafhlöðuna.
3 Lokaðu SIM-kortafestingunni. Settu SIM-kortið inni í festinguna þannig að skáhorn
kortsins snúi niður og snertiflöturinn snúi að snertum símans. Hliðin með ávala
horninu passar undir brún tækisins. Lokaðu SIM-kortsfestingunni.
4 Gættu að snertum rafhlöðunnar og settu rafhlöðuna í.
5 Settu rafhlöðulokið á tækið þannig að krókarnir á efri hluta loksins nemi við
viðeigandi raufir á tækinu. Renndu bakhliðinni á til að loka.
6
Tækið tekið í notkun