Rafhlaðan hlaðin
Rafhlaðan kemur hlaðin að hluta til frá framleiðanda. Ef tækið sýnir að rafhlaðan sé að
tæmast skaltu gera eftirfarandi:
1 Stingdu hleðslutækinu í samband við innstungu.
2 Tengdu hleðslutækið við tækið.
3 Þegar tækið sýnir að rafhlaðan er fullhlaðin skaltu fyrst taka hleðslutækið úr
sambandi við tækið og síðan úr innstungunni.
Einnig er hægt að hlaða rafhlöðuna með USB-snúru sem tengd er við tölvu.
1 Tengdu USB-snúruna við USB-tengi tölvunnar og einnig við tækið.
2 Taktu USB-snúruna úr sambandi þegar rafhlaðan er fullhlaðin.
Ef rafhlaðan er alveg tóm er hugsanlegt að ekki sé hægt að hlaða með USB. Notaðu
hleðslutækið í staðinn.
Ekki þarf að hlaða rafhlöðuna í tiltekinn tíma og hægt er að nota tækið á meðan það er
í hleðslu. Ef rafhlaðan er alveg tóm geta liðið nokkrar mínútur þar til hleðsluvísirinn
birtist á skjánum eða þar til hægt er að hringja.
Ef síminn er settur í hleðslu meðan kveikt er á útvarpinu geta gæði merkisins minnkað.
8
Tækið tekið í notkun