Nokia 3710 fold - Minniskorti komið fyrir eða fjarlægt

background image

Minniskorti komið fyrir eða fjarlægt

Aðeins skal nota samhæft microSD-minniskort sem Nokia samþykkir til notkunar með

þessu tæki. Nokia styðst við viðurkennda staðla fyrir minniskort. Þó getur verið að sum

kort sé ekki hægt að nota að fullu með þessu tæki. Ósamhæf kort geta skaðað kortið og

tækið og skemmt gögn sem vistuð eru á kortinu.
Síminn styður microSD-kort sem eru allt að 8 GB. Hámarksstærð einnar skráar er 2 GB.
Minniskorti komið fyrir

1 Slökktu á tækinu og fjarlægðu bakhliðina og rafhlöðuna.

2 Ýttu festingu minniskortsins inn á við til að opna hana.

3 Opnaðu festinguna og settu minniskortið í hana þannig að snerturnar snúi inn á

við.

4 Kortafestingunni er lokað og ýtt á hana til að læsa henni.

5 Settu rafhlöðuna og bakhliðina á sinn stað.

Tækið tekið í notkun

7

background image

Minniskort fjarlægt

1 Fjarlægðu bakhliðina og rafhlöðuna.

2 Opnaðu minniskortafestinguna og taktu minniskortið úr henni. Lokaðu svo raufinni.

3 Settu rafhlöðuna og bakhliðina á sinn stað.