Lykilorð
Veldu
Valmynd
>
StillingarÖryggi
>
Aðgangslyklar
til að stilla hvernig tækið notar
aðgangslyklana og öryggisstillingarnar.
•
Öryggisnúmerið gerir þér kleift að verja tækið gegn óheimilli notkun. Forstillta
númerið er 12345. Hægt er að breyta númerinu og láta tækið biðja um númerið.
Beðið er um öryggisnúmerið í sumum aðgerðum, burtséð frá stillingum, t.d. ef setja
á aftur upp upphaflegar stillingar framleiðanda. Haltu númerinu leyndu og á
öruggum stað fjarri símanum. Ef þú gleymir númerinu og tækið er læst þarftu að
leita til þjónustuaðila og e.t.v. greiða viðbótargjald. Nánari upplýsingar færðu hjá
Nokia Care þjónustuveri eða söluaðilanum.
•
PIN-númerinu, sem fylgir með símanum, er ætlað að hindra að kort símans sé notað
í leyfisleysi.
•
PIN2-númerið, sem fylgir sumum SIM-kortum, er nauðsynlegt til að hafa aðgang að
tiltekinni þjónustu.
Kveikt á símanum 11
•
PUK- og PUK2-númer kunna að fylgja SIM-kortinu. Ef þú slærð inn rangt PIN-númer
þrisvar sinnum í röð ertu beðinn um PUK-númerið. Hafa skal samband við
þjónustuveituna ef þessi númer fylgja ekki með símanum.
•
Þegar útilokunarþjónusta er notuð til að takmarka símtöl í og úr tækinu
(sérþjónusta) er lykilorðs útilokunar krafist.
•
Til að skoða eða breyta stillingum öryggiseiningar fyrir vafrann velurðu
Valmynd
>
Stillingar
og
Öryggi
>
Öryggiseining
.