Nokia 3710 fold - Þráðlaus Bluetooth-tækni

background image

Þráðlaus Bluetooth-tækni

Með þráðlausri Bluetooth-tækni er hægt að tengja tækið, með útvarpsbylgjum, við

samhæft Bluetooth-tæki sem er í innan við 10 metra fjarlægð (32 fet).
Veldu

Valmynd

>

Stillingar

>

Tengingar

>

Bluetooth

.

Þetta tæki er samhæft við Bluetooth Specification 2,1 + EDR sem styður eftirfarandi snið:

SIM access, object push, file transfer, headset, handsfree, generic access, serial port,

generic object exchange, dial-up networking, device ID, phonebook access, service

discovery application, advanced audio distribution, audio video remote control og

generic audio/video distribution. Til að tryggja samvirkni milli annarra tækja sem styðja

Bluetooth-tækni skal nota aukabúnað sem eru viðurkenndir af Nokia fyrir þessa tegund.

Leita skal upplýsinga hjá framleiðendum annarra tækja um samhæfi þeirra við þetta

tæki.
Þau forrit sem notast við Bluetooth ganga á rafhlöðu símans og draga úr endingu

hennar.
Uppsetning Bluetooth-tengingar

1 Veldu

Nafn símans míns

og sláðu inn nafnið á tækinu.

22 Gerðu símann að þínu tæki

background image

2 Til að koma á Bluetooth-tengingu skaltu velja

Bluetooth

>

Kveikja

. sýnir að

Bluetooth-tenging er virk.

3 Til að tengja tækið við aukabúnað fyrir hljóð velurðu

Tengja hljóðaukab.

og

aukabúnaðinn.

4 Til að para tækið við öll Bluetooth-tæki á svæðinu skaltu velja

Pöruð tæki

>

Nýtt

tæki

.

5 Veldu tækið og svo

Bæta við

.

6 Finndu lykilorð (allt að 16 stafir) ásamt notanda hins tækisins og sláðu lykilorðið

inn í tækinu þínu. Slá verður sama lykilorð inn í hitt tækið þegar þess er krafist til

að koma á tengingu.

Notkun tækisins í falinni stillingu er öruggari leið til að forðast hættulegan hugbúnað.

Ekki skal samþykkja Bluetooth-tengingar frá aðilum sem ekki er treyst. Einnig er hægt

að slökkva á Bluetooth. Þetta hefur ekki áhrif á aðrar aðgerðir símans.
Tölva tengd við internetið

Notaðu Bluetooth-tækni til að tengja tölvuna við internetið án þess að nota PC Suite

hugbúnaðinn. Tækið verður að geta tengst internetinu (sérþjónusta) og tölvan verður

að styðja Bluetooth-tækni.
1 Tryggið að tölvan sé nettengd.

2 Paraðu tækið þitt við tölvuna þína með Bluetooth-tengingu. Tækið þitt opnar

sjálfkrafa pakkagagna-tengingu við netið.