Öryggi vafra
Sumar þjónustur, líkt og bankaþjónusta eða vefverslun, kunna að notast við ákveðnar
öryggisaðgerðir. Við slíkar tengingar þarf öryggisvottanir og hugsanlega
öryggiseiningu sem kann að vera tiltæk á SIM-kortinu. Þjónustuveitan gefur nánari
upplýsingar.
Til að skoða eða breyta stillingum öryggiseininga, eða til að skoða lista yfir heimildar-
og notandavottorð sem hlaðið hefur verið niður í símann velurðu
Valmynd
>
Stillingar
og
Öryggi
>
Öryggiseining
,
Heimildavottorð
eða
Notandavottorð
.
Mikilvægt: Þó að notkun vottorða dragi verulega úr þeirri áhættu sem fylgir
fjartengingum og uppsetningu hugbúnaðar verður að nota þau rétt svo að aukið öryggi
fáist. Tilvist vottorðs er engin vörn ein og sér. Vottorðastjórinn verður að vera með rétt,
sannvottuð eða tryggileg vottorð svo að aukið öryggi fáist. Vottorð eru bundin
tilteknum tíma. Ef textinn „Útrunnið vottorð“ eða „Vottorðið hefur enn ekki tekið gildi“
birtist þó svo að vottorðið ætti að vera gilt skal athuga hvort rétt dag- og tímasetning
sé í tækinu.
Áður en vottorðsstillingum er breytt þarf að ganga úr skugga um að örugglega megi
treysta eiganda þess og að það tilheyri í raun eigandanum sem tilgreindur er.